Thursday, April 06, 2006

Sviðahaus með langan hala

Að undanförnu hafa verkefni tekið að hrannast upp á borðinu mínu. Í stað þess að þeim fækki með fjölgandi vinnustundum fjölgar þeim, ég er orðin sviðahaus með langan hala ..............

Í gær tókst mér að:
  • Stýra mínu fyrsta starfsmannasamtali.
  • Ljúka greinargerð um vikur.
  • Snara 18 sáldurferlum á ensku og prenta þá á pdf-form, hnaut um eina ásláttarvillu á leiðinni.

Í dag tekst mér væntanlega að:

  • Ljúka úrvinnslu á bergrannsóknum á um 20 sýnum.
  • Ljúka þremur starfsmannasamtölum og þar með ljúka því verki.
  • Hugsanlega hefja yfirferð reikninga.

Þá á ég aðeins eftir:

  • Að ljúka yfirferð reikninga.
  • Úrvinnslu úr sigprófi. Sigspáin verður þá eftir, aðrir fá hana sér til skemmtunar.
  • Minnisblað um sand.
  • Nokkur skerboxpróf.

Þessu á öllu að ljúka í vikunni. Um helgina eru síðan fermingarveislur, ég ætla að baka eina þriggja hæða, 60 manna tertu. Það verður mjög skemmtilegt.

Af ofantöldu sést að halinn er langur og hann styttist ekki því ég hef ekki talið upp þau verkefni sem hafa bæst við í þessari viku.


0 Comments:

Post a Comment

<< Home