Wednesday, April 05, 2006

Skrítin skrúfa

Við erum öll hvert með sínu nefi. Ég er t.d. ein af þeim sem segi kannski ekki endilega margt, svona í orðum, en geri þeim mun meira, læt verkin tala. Geng t.d. með skrúflykil á mér svo ég geti losað og hert rær eftir þörfum frekar en að biðja einhvern að gera það fyrir mig; er með nokkur stykki málbönd til að mæla það sem ég er að velta fyrir mér og er jafnvel aflögufær fyrir næsta mann. Ég vil láta dæma mig af verkum mínum en ekki endilega orðum, enda ekkert alltaf orðheppin þótt heppin sé. Ég er skrítin skrúfa, kannski ég mæti e-m á förnum vegi með skrúflykil í vasanum.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home