Páskaunginn minn
Nú er páskaunginn minn floginn úr hreiðrinu með sinni kærustu. Talaði við þau í gærkvöldi, þá var tengdó í heimsókn. Búið að fara í Bónus og kaupa ódýrustu matvælin sem í boði voru. Elsku krílin mín, gangi ykkur vel!
Á meðan sit ég sveitt við að skipuleggja kynningarpartí fyrir Dótaland. Boðslistinn telur hátt í 500 manns fyrir utan starfsliðið (það er 150 manns). Ég reikna með svona 100 manns, í mesta lagi 150. Þarna eru ráðherrar (núverandi og fyrrverandi), forstjórar og almenningur, allt í bland. Í partíinu á að gefa gamla pressu á minjasafn. Þessi pressa, sem er jafnaldra mín, hefur verið notuð til að meta styrk steypu í virkjunum allt frá árinu 1967 þar til í fyrra að Dótaland fékk nýja pressu (fékk reyndar tvær).

2 Comments:
pressan er þá ná varla svo voða gömul. safngripur?
Aldurinn er svo afstæður. Svo er verið að yngja okkur upp´Ærir minn, páskaunginn okkar er t.d. að prófa vængina og brátt fer hann að steypa okkur af stalli.
Post a Comment
<< Home