Monday, February 13, 2006

Dýra Dótalandið

Dýrin í Dótalandi reyndust vera skaðlausar rakabjöllur. Ekkert frekar í þeim málum, í bili a.m.k.

Úr Dótalandi berast þær fréttir að þar er allt orðið skrúbbað og fínt fyrir komu fyrirmennisins frá útlandinu, sá sem seldi okkur búnaðinn er að koma til að kenna okkur á hann. Í dag trimmaði ég til fyrsta tx sýnið (=þríásasýni) mitt. Allt gekk vel utan að stór vala var neðst í sýninu og aftraði mér frá að geta náð sýni sem 55,8 mm í þvermál og 100 mm að lend, "flawless". Þannig að ég fæ að spreyta mig aftur á morgun. Félagi minn trimmaði til eitt Ödometer sýni sem býður þess að komast í tækin.

Síðan þurfum við að bjóða yfirstjórninni í heimsókn þegar fyrstu sýnin verða brotin. Þetta er mikið drullumall og fjör. Svo fer sandurinn í skerboxið, hugsanlega líka í tx, kemur allt í ljós.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home