Friday, April 21, 2006

Unginn minn (ekki sá brottflutti)

Unginn minn, þessi sem „enn vill búa heima hjá mömmu“ (djók) er að dimmitera í dag. Svo var hann að fá upphringingu - hann er boðaður í prufumyndatöku í fyrramálið. Um daginn var hann nefnilega einn af milljón (eða þannig) sem vonuðust eftir hlutverki í kvikmynd. Hann bjóst ekki við að heyra meira af þessu en ... enginn veit sína ævina fyrr en öll er eins og máltækið segir. Mér skilst að mynda eigi hann í auglýsingu, þetta kemur allt í ljós. Ég vona bara að hann sýni skynsemi í kvöld þegar hann fagnar með félögum sínum.

Unga parið er alsælt í sínu nýja hreiðri. Íbúðin er miðsvæðis og tekur ekki nema 5 mín. að komast í skólann eða í bæinn eða ... næstum hvert sem er (nema heim til mömmu). Það hlýjar manni því að sjá hann birtast í dyragættinni (eða heyra í honum einhvers staðar í þessu stóra húsi). Það er þá allavega eitthvað sem trekkir að - matur eða Sýn eða önnur þjónusta.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home