Sonur minn, Silvía Nótt og alheimsfegurðardrottningin ...
... eiga það sameiginlegt að myndir af þeim birtust í nýjasta tölublaði Séð og heyrt. Öll voru þau nafngreind og fleiri en ein mynd birtust af þeim öllum. Sennilega er þetta það eina sem þau þrjú eiga sameiginlegt, nema náttúrulega sonurinn og alheimsfegurðardrottningin en þeim er ágætlega til vina (synirnir vanda valið þegar kemur að kvenfólki, nú þegar er ein fegurðardís í tölu tilvonandi tengdadætra). Sonurinn og drottningin eru gömul skólasystkin og leikfélagar úr Thalíu, leikfélagi MS. Svo er það hestamennskan, drottningin þekktur knapi og sonurinn mjög efnilegur eftir kennslustundir með pabba sínum. (Nóta bene, hann hefur fengið Glóa minn sem skýrir gott gengi!)
Nema hvað, nú er um að gera að verða sér úti um Séð og heyrt og skoða myndir af drengnum, hann myndast einstaklega vel.
Nema hvað, nú er um að gera að verða sér úti um Séð og heyrt og skoða myndir af drengnum, hann myndast einstaklega vel.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home