Thursday, March 02, 2006

Teymingar

Í gær brá ég mér á bak á Glóa mínum og teymdi Hóf mér við hlið. Til að byrja með gekk allt eins og í sögu, við fórum fetið og allir stilltir og prúðir. Þegar við nálguðumst brekku eina mikla, sem klárarnir hafa oft stokkið upp, færðist óþol í Hóf og hann hóf að narta í Glóa. Eftir það þurfti ég að beita aga til að hafa stjórn á hlutunum en allt gekk þetta nú samt vel, við komumst hringinn. Nú þurfum við þrjú að æfa þetta nokkrum sinnum og síðan þarf ég að teyma á Hóf, sjá hvernig það gengur. Síðast þegar ég prófaði (í fyrra) varð úr því þónokkurt ævintýri, kannski gengur það betur núna.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home