Friday, March 03, 2006

Mr. Thoreg

Um daginn var ég beðin að stýra fundi í Evrópsku verkefni sem ég hef komið lítillega að á undanförnum fimm árum. Fundurinn verður haldinn í Varsjá í Póllandi og ég var ekki lengi að segja já því þangað hef ég aldrei komið. Þetta verður jafnframt lokafundurinn í verkefninu svo það verður áreiðanlega skemmtilegt.

Ég fékk send drög að dagskrá, þar er ég titluð „Mr. Thoreg“. Ég hef ekki enn leiðrétt það, gaman að koma þeim á óvart (litli púkinn inni í mér). Reyndar vita þeir sem málið varðar hver ég er svo þeir fá ekki hjartaáfall.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home