Tuesday, March 14, 2006

Pride and prejudice

Jane Austen er einn af mínum uppáhalds rithöfundum og af sögunum hennar held ég mest upp á Pride and prejudice, sem í íslenskri þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur heitir Hroki og hleypidómar.

Það er svo merkilegt að lesa skáldsögur sem skrifaðar voru fyrir 200 árum um venjulegt fólk, þetta eru sömu karakterarnir og eru í kring um okkur í dag. Það sýnir hvað tíminn er afstæður, ytri aðstæður breytast en hið innra er mannfólkið samt við sig.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home